Fotbolti.net
07.11.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Mac Allister: Liverpool vildi ekki semja við mig

Mac Allister: Liverpool vildi ekki semja við mig
Canon

Mynd: EPA

Argentínski miðjumaðurinn Alexis Mac Allister er með rúmlega eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Liverpool og vonast til að setjast niður við samningaborðið með stjórnendum.
Mac Allister mjög leiður yfir því að fá ekki nýjan samning hjá Liverpool
TENGT EFNI

Mac Allister mjög leiður yfir því að fá ekki nýjan samning hjá Liverpool

Hann var vonsvikinn þegar liðsfélagar hans fengu nýja samninga síðasta sumar en ekki hann.

„Það getur ýmislegt gerst áður en ég verð samningslaus, það er eitt og hálft ár eftir. Á síðustu leiktíð skildist mér að félagið hygðist ekki semja við mig og það særði mig," segir Mac Allister.

„Ég elska Liverpool og vil halda áfram hjá félaginu. Raunveruleikinn er sá að við erum með nýjan þjálfara og nýjan yfirmann fótboltamála, auk nýrra fjárfesta. Þess vegna líður mér eins og allt geti gerst í framtíðinni. Mér líður mjög vel hérna."

Mac Allister er 27 ára gamall og var keyptur til Liverpool fyrir um 50 milljónir punda sumarið 2023. Hann leikur á miðjunni og hefur komið með beinum hætti að 5 mörkum í 15 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.