Fotbolti.net
08.07.20 - 23:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Brynjar um Valgeir: Frábær eiginleiki að gefast aldrei upp

Auglýsing
Brynjar Björn Gunnarsson.

Brynjar Björn Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Fínn fótboltaleikur," sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, eftir 2-2 jafntefli gegn ÍA, í Pepsi Max-deildinni í kvöld.
„Við vörðumst ágætlega fyrstu 20 mínúturnar fyrir utan markið sem við fengum á okkur eftir fast leikatriði. Við réðum ekki alveg við boltann til að byrja með en áttum fullt af möguleikum. Eftir að við fáum fyrsta markið á okkur þá slökum við á, látum boltann ganga betur og fáum mjög gott mark upp úr góðu spili."

HK er með fimm stig eftir fimm leiki í áttunda sæti Pepsi Max-deildarinnar.

„Ég er sæmilega sáttur, ég væri til í að vera með einu eða tveimur stigum meira. Stig á erfiðum útivelli, við verðum að taka það og virða það. Vonandi fáum við þrjú stig í Kórnum í næsta leik."

Brynjar var að lokum spurður út í Valgeir Valgeirsson sem slegið hefur í gegn í Pepsi Max-deildinni. „Hann er frábær leikmaður, góður sóknarmaður og góður varnarmaður. Hann er vinnusamur og hefur gæði til að taka mann á. Hann gefst aldrei upp sem er frábær eiginleiki að hafa."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Valgeir Valgeirsson.

Valgeir Valgeirsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.