Amin traðkaði á leikmanni Þórs - Atvikinu vísað til aganefndar

Amin Cosic

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Christian Jakobsen

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Ingi sá ekki hvað gerðist.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Axel Kári er lögfræðingur KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amin Cosic

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atvik úr leik Þórs og KR síðastliðinn fimmtudag hefur verið vísað til aganefndar. Þetta staðfestir Axel Kári Vignisson, lögfræðingur KSÍ, í samtali við Fótbolta.net.
Það er málskotsnefnd KSÍ sem vísar atvikinu til aga- og úrskurðarnefndar sambandsins sem á eftir að taka sína ákvörðun.
Amin Cosic, leikmaður KR, traðkaði á rist Christian Greko Jakobsen, leikmanns Þórs, inn á vítateig Þórs þegar KR átti hornspyrnu. Í sama atviki setti hann líka hönd sína í bringuna á Greko. Það hafði verið kítingur þeirra á milli og Greko, sem var að dekka Amin, hafði ýtt aðeins í hann inn á teignum og brást Amin illa við.
Dómarar leiksins sáu ekki atvikið en Jóhann Ingi Jónsson, dómari leiksins, ræddi við menn sem voru í kring og í kjölfarið var hornspyrnan tekin.

TENGT EFNI
Sjáðu atvikið: Amin heppinn að fá ekki rautt?
Amin, sem mun ekki spila fleiri leiki á Íslandsmótinu og er farinn til Noregs þar sem hann hefur samið við meistarana í Viking, gæti samt verið refsað fyrir atvikið. Atvikið átti sér stað á 80. mínútu og þá var staðan 3-2 fyrir Þór, en lokatölur urðu 3-3 þar sem KR jafnaði örfáum mínútum síðar.
Þjálfarar Þórs voru allt annað en sáttir við dómgæsluna í leiknum, Sigurður Heiðar Höskuldsson fékk að líta gula spjaldið eftir þetta atvik og í lok leiks fékk aðstoðarþjálfarinn Eiður Benedikt Eiríksson rauða spjaldið.
„Ég get staðfest að þetta atvik er í skoðun. Fundir aganefndar eru almennt á þriðjudögum og það er ekki búið að taka það fyrir," segir Axel.
„Þetta er fótbolti og sumir hlutir gerast inni á vellinum. Ég segi bara 'no comment', leyfi fólki bara að tala og ræða það sem þau vilja á TikTok og Twitter. Það þurfa einhverjir að vera skemmtilegir á Twitter fyrir aftan skjáinn að skrifa einhverja hluti," sagði Amin um atvikið í viðtali við Fótbolta.net.
Kristinn Kjærnested lýsti leiknum á SÝN Sport og sagði að Amin hefði verið ljónheppinn að sleppa með skrekkinn.