Fotbolti.net
08.07.26 - 22:24
Sigurjón Árni Torfason
Gatorade

Skoraði eftir móðurmissinn - „Bara orðlaus“

Auglýsing
Aron Fannar skoraði á 79 mínútu og tileinkaði móður sinni markið

Aron Fannar skoraði á 79 mínútu og tileinkaði móður sinni markið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss tók á móti Árborg í kvöld í Gatorade bikar Fótbolti.net. Leiknum lauk með 5-0 sigri Selfyssinga en leikurinn var styrktarleikur fyrir Helgu Guðmundsdóttur (móður Arons Fannars), sem lést á dögunum eftir baráttu við krabbamein.

Að ósk Helgu mun allur ágóði leiksins renna óskertur til heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.
Lestu um leikinn: Selfoss 5 - 0 Árborg

„Bara orðlaus, þetta er bara stórkostlegt. Ég bara veit ekki hvað það eru margir hérna. Það seldust hátt í 2.000 miðar, þetta var bara rugl, bara geðveikt að vinna þetta 5-0. Þetta er bara einhver besti dagur ársins í ljósi aðstæðna samt,"  sagði Aron Fannar Birgisson, leikmaður Selfoss, eftir leik.

Það seldust 1.300 miðar í gegnum Stubb. Rúmlega 700 manns voru á vellinum og það seldust miðar fyrir 4,8 milljónir króna.

„Já, í rauninni já, klárlega, bara þessi forsala fór langt fram úr okkar væntingum. Við héldum að menn myndu kannski borga sig inn á vellinum en bara þessi stuðningur í liðinni viku er ótrúlegur. Ég hreinlega get ekki þakkað fólki meira fyrir."

Aron Fannar kom inn á sem varamaður í hálfleik og skoraði með skalla eftir hornspyrnu á 79. mínútu. Hann fagnaði markinu með Selfoss-treyju sem var merkt móður sinni, Helgu Guðmundsdóttur.

Þetta er náttúrulega frábært hjá klúbbnum.

„Þeir gerðu þessa hérna fyrir mig með nafni hjá mömmu. Þetta er frábært."


Skoraði eftir móðurmissinn - „Bara orðlaus“
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.