09.07.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Adeyemi biður um sölu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýski sóknarleikmaðurinn Karim Adeyemi er búinn að ræða við stjórnendur Borussia Dortmund og tilkynna þeim að hann vilji fá félagaskipti til Barcelona.
Adeyemi er aðeins með eitt ár eftir af samningi og ætlar ekki að endurnýja. Dortmund vill 40 milljónir evra fyrir kantmanninn en Börsungar eru ekki tilbúnir til að greiða mikið meira heldur en 20 milljónir.
Hann er 24 ára gamall og hefur komið að 61 marki í 146 leikjum með Dortmund, auk þess að eiga 11 landsleiki að baki fyrir Þýskaland.
Adeyemi yrði þriðji leikmaðurinn sem Börsungar klófesta í sumar eftir Anthony Gordon og Hamza Abdelkarim.

TENGT EFNI