Fotbolti.net
09.07.26 - 20:59
Snæbjört Pálsdóttir

Allison eftir sigurinn: „Við skuldum vörninni helling"

Auglýsing
Allison Grace Lowrey skoraði eitt mark og lagði upp annað þegar ÍBV vann góðan 3-1 sigur á Víkingi í Fossvoginum.

Allison Grace Lowrey skoraði eitt mark og lagði upp annað þegar ÍBV vann góðan 3-1 sigur á Víkingi í Fossvoginum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

ÍBV vann góðan 3-1 útisigur gegn Víkingi í 11. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Allison Grace Lowrey átti góðan leik fyrir eyjakonur, er hún skoraði fyrsta mark leiksins og lagði upp annað.

Þrátt fyrir sigurinn var Allison ekki fullkomlega sátt með frammistöðuna eftir leik.

„Ég er klárlega svolítið vonsvikin með frammistöðuna, bæði hjá mér sjálfri og liðinu fram á við. Við fengum mikið af færum sem við nýttum okkur ekki og við skuldum vörninni helling, því hún bjargaði okkur oft í dag. Ég get ekki þakkað þeim nóg.“

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 3 ÍBV

Allison hefur verið að glíma við meiðsli en segir að pásan í deildinni hafi nýst vel.

„Já, við fengum þrjár vikur til að reyna að finna út úr hlutunum og ég fékk tækifæri til að horfa aðeins á sjálfa mig og hvernig ég hef verið að spila og hvað ég vil breyta.“

„Ég vil vera meira aggressív, ég vil snúa, fara á markið og nota báða fætur. Ég vil bara gera það og sjá hvað gerist.“

Allison segir að liðið fari með svipað hugarfar inn í seinni hluta tímabilsins.

„Við erum allar svolítið með það hugarfar fyrir seinni hluta tímabilsins. Já, við erum í fjórða sæti en við enduðum fyrri hlutann ekki eins og við vildum. Við erum bara að horfa á stærri myndina og hvernig við getum sjálfar orðið betri.“

„Við viljum klárlega vera áfram ofarlega. Ég veit ekki alveg hvað það er, topp sex eða topp fjögur, en við tökum bara einn leik í einu. Ég veit ekki einu sinni á móti hverjum við spilum næst.“

„Mér finnst bara best að einbeita mér að næsta leik og gefa honum alla mína athygli og halda svo áfram þaðan.“

Að lokum var Allison spurð hvernig henni liði eftir meiðslin.

„Mér líður vel. Við vitum hvernig við eigum að díla við þetta núna. Sjö, níu, þrettán, vonandi er þetta búið.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.