Darlow á leið til Man Utd

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Karl Darlow er nálægt því að ganga í raðir Manchester United en það er The Athletic sem greinir frá.
Darlow er 35 ára velskur markvörður sem varði mark Leeds 22 sinnum í ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili. Hann hefur verið hjá Leeds síðustu fjögur tímabil en er með lausan samning og er sagt að hann hafi hafnað nýjum samningi hjá Leeds.

Hann hafði áður verið hjá Newcastle og Nottingham Forest, en hann er uppalinn hjá Aston Villa og Forest.
United vill fá inn reynslumikinn markvörð til að vera Senne Lammens til halds og traust á komandi tímabili. Darlow tikkar í þau box að vera með úrvalsdeildarreynslu og er breskur sem hjálpar til við skráningu á honum.
Búist er við því að Altay Bayindir, sem var varamarkvörður á síðasta tímabili, fari frá félaginu í sumar.