Fotbolti.net
09.07.26 - 17:59
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópudeildin: Vestri tapaði sögulegum Evrópuleik

Evrópudeildin: Vestri tapaði sögulegum Evrópuleik
Canon

Mynd: EPA

Qarabag 3 - 0 Vestri
1-0 Zakaria Sawo ('30)
2-0 Abdellah Zoubir ('45)
3-0 Renaldo Cephas ('86)
Lestu um leikinn: Qarabag 3 - 0 Vestri
Lengjudeildarlið Vestra heimsótti Aserbaídsjan til að keppa við stórveldið Qarabag í forkeppni Evrópudeildarinnar í dag.

Heimamenn voru talsvert sterkari aðilinn og náðu forystunni þegar Zakaria Sawo skallaði fyrirgjöf í netið á 30. mínútu, áður en Abdellah Zoubir tvöfaldaði forystuna með laglegu einstaklingsframtaki skömmu fyrir leikhlé.

Zoubir vann boltann hátt uppi á vellinum og gerði mjög vel að klára sjálfur. Elmar Atli Garðarsson fyrirliði tapaði boltanum.

Staðan var 2-0 í leikhlé og fengu Ísfirðingar fín tækifæri til að minnka muninn í fyrri hluta síðari hálfleiks, áður en heimamenn endurheimtu völdin á vellinum og bættu þriðja markinu við. Þar var Renato Cephas á ferðinni eftir frábæran undirbúning frá Sawo, sem skoraði fyrsta mark leiksins.

Vestra tókst ekki að minnka muninn svo lokatölur urðu 3-0 í fyrsta Evrópuleik í sögu Ísfirðinga.

Stjarnan tekur á móti Víkingur Göta í forkeppni Sambandsdeildarinnar á eftir.
Evrópudeildin: Vestri tapaði sögulegum Evrópuleik
Canon

Mynd: Vestri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.