Sambandsdeildin: Stjarnan hafði betur gegn Færeyingunum

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stjarnan 3 - 1 Víkingur Göta
0-1 Aron Benjaminsen ('11 )
1-1 Emil Atlason ('41 , víti)
2-1 Emil Atlason ('65 )
3-1 Emil Atlason ('77 , víti)
0-1 Aron Benjaminsen ('11 )
1-1 Emil Atlason ('41 , víti)
2-1 Emil Atlason ('65 )
3-1 Emil Atlason ('77 , víti)
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 1 Víkingur Götu
Stjarnan fékk Víking Göta í heimsókn frá Færeyjum í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld og náðu gestirnir forystunni snemma leiks, þegar Aron Benjaminsen skoraði laglegt mark eftir misheppnaða hornspyrnu.
Boltinn barst á Benjaminsen sem lék á varnarmann Stjörnunnar áður en hann skrúfaði boltann í netið og fagnaði svakalega.
Stjörnumenn fengu góð færi til að skora á upphafsmínútunum en eftir markið jafnaðist leikurinn út og var lítið um færi. Víkingur var hættulegur í skyndisóknum sínum á meðan Garðbæingar sköpuðu lítið sem ekkert, þar til vítaspyrna var dæmd þegar Benedikt Warén var felldur innan vítateigs. Emil Atlason skoraði af vítapunktinum svo staðan var jöfn 1-1 í hálfleik.
Garðbæingar byrjuðu seinni hálfleikinn betur en hann jafnaðist út og vildu gestirnir fá dæmda vítaspyrnu, en fengu ekki. Bæði lið fengu hálffæri þar til Emil náði forystunni með sínu öðru marki. Hann skallaði fyrirgjöf frá Benedikt Warén í netið og skipti Stjarnan um gír í kjölfarið.
Birnir Snær Ingason skaut í slána áður en Emil fullkomnaði þrennu með öðru vítaspyrnumarki, í þetta sinn eftir að brotið hafði verið á Örvari Loga Örvarssyni. Lokatölur urðu því 3-1 og er Stjarnan í góðri stöðu fyrir seinni leikinn í Færeyjum.