Fotbolti.net
09.07.26 - 15:33
Kári Snorrason

Eriksen undirbýr sig fyrir endurkomu á völlinn

Frá leiknum gegn Úkraínu.

Frá leiknum gegn Úkraínu.

Canon

Mynd: EPA

Christian Eriksen er í endurhæfingarferli eftir að hafa hnigið niður til jarðar í æfingaleik með Danmörku gegn Úkraínu í síðasta mánuði.

Eriksen fékk hjartastopp í leik á EM fyrir fimm árum og var þá græddur í hann bjargráður. Bjargráðurinn veitti honum stuð eftir að hjartslátturinn fór úr skorðum í síðasta mánuði.
Hraustur Eriksen gefur út yfirlýsingu - „Öðruvísi tilfelli en 2021“
TENGT EFNI

Hraustur Eriksen gefur út yfirlýsingu - „Öðruvísi tilfelli en 2021“

Margir héldu að eftir að hafa hnigið til jarðar tvívegis myndi Eriksen leggja skóna á hilluna en samkvæmt tilkynningu Wolfsburg, félagsliði Danans, virðist það ekki vera raunin.

„Christian Eriksen mun von bráðar hefja einstaklingsmiðaða endurhæfingu og mun hann ljúka henni í heimalandi sínu, Danmörku.

Wolfsburg er í reglulegu sambandi við Christian sem og læknana sem annast hann. Við óskum Christian áfram alls hins besta í endurhæfingunni,“
segir í tilkynningu félagsins.

Átta mánuðum eftir hjartastoppið 2021 fór Eriksen að leika að nýju með Brentford og gekk hann síðan í raðir Manchester United.

Bold í Danmörku ræddi við hjartalækni sem ráðlagði Eriksen að snúa ekki aftur inn á völlinn og segir tímaspursmál hvenær hann falli aftur til jarðar skyldi hann halda áfram að spila.

Teppi lagt yfir Eriksen eftir að hann hneig til jarðar í síðasta mánuði.

Teppi lagt yfir Eriksen eftir að hann hneig til jarðar í síðasta mánuði.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.