Fotbolti.net
09.07.26 - 20:42
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Espanyol fær menn frá PSG og Burnley (Staðfest)

Espanyol fær menn frá PSG og Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: PSG

Frakklands- og Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru búnir að lána brasilíska varnarmanninn Gabriel Moscardo í spænska boltann.
Moscardo mun leika á láni hjá Espanyol næstu leiktíð eftir að hafa gert flotta hluti á láni hjá Braga á síðasta tímabili, en þar áður var hann lánaður til Reims.

Moscardo er 20 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi við PSG. Frakkarnir keyptu hann í sínar raðir fyrir tveimur árum síðan og kostaði hann 20 milljónir evra.

Espanyol er einnig búið að krækja í hollenska bakvörðinn Quilindschy Hartman á lánssamningi frá Burnley. Hartman er 24 ára gamall og á fimm A-landsleiki að baki fyrir Holland.

Hann var meðal bestu leikmanna Burnley þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Espanyol var lengi vel í fallbaráttu í spænsku deildinni á síðustu leiktíð en bjargaði sér undir lokin. Liðið náði mögnuðum árangri fyrir áramót og var í óvæntri baráttu um Meistaradeildarsæti, en gekk svo hörmulega á nýju ári.

Espanyol fær menn frá PSG og Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Burnley

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.