Fotbolti.net
08.09.18 - 16:27
Mist Rúnarsdóttir

Steini Halldórs: Þær máttu vera með boltann

Auglýsing
Blikar eru í lykilstöðu og þjálfarateymið getur glaðst

Blikar eru í lykilstöðu og þjálfarateymið getur glaðst

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Hertz
„3-0 gefur kannski ekki rétta mynd af leiknum. Við unnum leikinn í lokin á því að þær voru farnar að senda menn upp og voru einum færri,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, eftir hrikalega sterkan sigur á Þór/KA í toppslag Pepsi-deildar.
„Leikurinn spilaðist eins og við vildum að hann spilaðist. Þær máttu vera með boltann og reyna að opna okkur en mér fannst það ekki takast og ég held að þær hafi ekki fengið neitt opið færi í leiknum.“

„Mér fannst þetta takast vel. Svo ætluðum við að breika á þær, fara í gegnum miðsvæðið hjá þeim þar sem þær eru svolítið opnar þegar þær eru út um allt,“
sagði Steini ennfremur um leikinn.

Úrslitin þýða að Blikar eru í algjöru dauðafæri á að vinna deildina. Með 5 stiga forskot þegar tvær umferðir eru eftir. Steini ætlar sér að sjálfsögðu að klára dæmið en leggur áherslu á að Blikar fari ekki fram úr sér.

„Við stefnum á að vinna næsta leik og gerum allt til þess að vinna hann. Það eina sem maður getur gert er að hugsa um næsta verkefni. Lifa í núinu og spila eftir því. Þó við séum með fimm stiga forskot í dag þá þurfum við ekki að fara langt aftur í tímann til að sjá að lið voru næstum búin að klúðra fimm stiga forskoti þegar tvær umferðir voru eftir.“

Hægt er að horfa á allt viðtalið við Steina í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.