Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 08. september 2022 08:30
Aksentije Milisic
Joey Barton sat með stuðningsmönnum Marseille í gær
Mynd: Getty Images

Joey Barton sást í gær gefa stuðningsmönnum Tottenham Hotspur puttann en hann sat í stúkunni með stuðningsmönnum Marseille á leiknum gegn Tottenham í Meistaradeild Evrópu.


Þessi fyrrverandi leikmaður Manchester City, Newcastle og QPR spilaði eitt sinn með Marseille og var hann mættur í gær að sýna stuðning.

Hann sást þá vera fá sér í glas með stuðningsmönnum liðsins nokkrum klukkustundum fyrir leikinn.

Það virtist fara vel um Barton í stúkunni en hann var brosandi og tók sér tíma í að taka myndir með stuðningsmönnunum.

Undir lok leiks brutust hins vegar út slagsmál en þá hafði Barton fært sig um set, sem hann gerði eftir fyrri hálfleikinn. Hann er stjóri Bristol Rovers í dag.

Hér fyrir neðan má sjá myndbrot af Barton í góðum gír.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner