Fotbolti.net
16.09.26 - 17:30
Kári Snorrason

Tækifæri fyrir Stefán að festa sig í sessi sem miðvörður - „Með ÞÞÞ genin af Skaganum“

Hefur alla burði til þess að vera góður miðvörður.

Hefur alla burði til þess að vera góður miðvörður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Aðeins þrír hreinræktaðir hafsentar voru valdir í landsliðshóp Íslands fyrir komandi landsleikjaverkefni í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Hafsentarnir þrír eru þeir Daníel Leó Grétarsson, Aron Einar Gunnarsson og Hörður Björgvin Magnússon. Þá hefur Guðlaugur Victor Pálsson einnig leyst miðvarðarstöðuna þegar þörf hefur verið á.

Ísland verður án Sverris Inga Ingasonar þar til á næsta ári en hann sleit krossband fyrr í sumar. Þá hefur Hjörtur Hermannsson verið að glíma við meiðsli og var því ekki valinn.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari ræddi á blaðamannafundi landsliðsins í dag um þann möguleika að spila Stefáni Teiti Þórðarsyni í miðverði í komandi verkefni.
Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn
TENGT EFNI

Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn

Gekk ekki nægilega vel í fyrstu tilraun
Í viðtali við Fótbolta.net eftir blaðamannafundinn var Arnar spurður hvort að hann sæi Stefán Teit frekar fyrir sér sem varnarmann frekar en miðjumann komandi inn í verkefnið.

„Ég átti þetta samtal við Stefán og við höfum verið að fabúlera um þetta. Við höfum verið að reyna gefa honum tækifæri á að kynnast þessu starfi aðeins upp á nýtt. Það er kannski ósanngjarnt að setja hann í þessa stöðu, þar sem hann æfir hana ekki reglulega, og ætlast til að hann sýni góða frammistöðu á háu stigi.

Það gekk ekki nægilega vel í fyrstu tilraun; gegn Kósovó í Murcia sælla minninga, leik sem ég er að reyna gleyma. En svo gekk þetta mjög vel á móti Japan. Ég held að þetta komi smátt og smátt,“
sagði Arnar.

Alla burði til að vera góður miðvörður
Arnar segir Stefán hafa alla burði til þess að vera góður miðvörður.

„Hann er fljótur, hávaxinn, teknískur, sterkur og með ÞÞÞ genin af Skaganum. Þetta er spurning um að láta honum líða vel. Kynnast okkar leikkerfi.

Hann á klárlega mjög góða möguleika að spila í okkar liði sem miðvörður. Kannski gefa þessi meiðsli í liðinu honum tækifæri að festa sig í sessi sem miðvörður,“
sagði Arnar að lokum.
Sverrir Ingi sleit krossband í sumar.

Sverrir Ingi sleit krossband í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hjörtur Hermannsson er jafnframt meiddur.

Hjörtur Hermannsson er jafnframt meiddur.

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

„Með ÞÞÞ genin af Skaganum.“

„Með ÞÞÞ genin af Skaganum.“

Canon

Mynd: ÍA/Jón Gautur

Arnar setur skýra kröfu að ná toppsætinu - „Þá ertu dauður“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.