Fotbolti.net
16.09.26 - 20:08
Fótbolti.net
Gatorade bikar Fótbolti.net

Miðasala á úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins í fullum gangi

Miðasala á úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins í fullum gangi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss og Haukar mætast í úrslitaleik Gatorade bikars Fótbolta.net, bikarkeppni neðri deilda klukkan 19 á Laugardalsvelli á föstudagskvöld.

Það má búast við mjög góðri stemningu enda hafa stuðningsmenn beggja liða ástæðu til að fagna góðu sumri. Þetta eru tvö efstu lið 2. deildar, Haukar unnu deildina og Selfoss tók annað sætið og bæði leika því í Lengjudeildinni á næsta ári.

Miðasala á leikinn er hafin á miðasöluvef KSÍ - Miðaverð á leikinn er 2.500 krónur og 500 krónur fyrir 16 ára og yngri.
Bestu liðin leika til úrslita í Laugardalnum um helgina
TENGT EFNI

Bestu liðin leika til úrslita í Laugardalnum um helgina

Upphitun fyrir leikinn verður á Ölveri þar sem gleðistund verður frá klukkan 15.00.

Selfyssingar ætla að hita upp fyrir leikinn á Risinu á Selfossi og opnar húsið klukkan 16:00. Magnús Kjartan mætir með gítarinn og tilboð verða á mat og drykk. Gummi Tyrfings býður stuðningsfólki að koma í rútu á völlinn.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.