Fotbolti.net
16.09.26 - 18:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Evrópukeppni unglingaliða: Þór tapaði í sjö marka leik

Evrópukeppni unglingaliða: Þór tapaði í sjö marka leik
Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þór U19 3 - 4 Zalgiris U19
0-1 Vakaris Berenta ('1 )
0-2 Dovydas Eidukaitis ('24 )
1-2 Ólíver Sesar Bjarnason ('26 )
1-3 Vakaris Berenta ('38 )
2-3 Stefán Björn Svavarsson ('74 )
3-3 Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson ('76 )
3-4 Vakaris Berenta ('77 )
Lestu um leikinn
Þór fékk litháneska liðið Zalgiris í heimsókn í forkeppni Evrópukeppni unglingaliða í dag. 2. flokkur Þórs varð Íslandsmeistari á síðasta tímabili og Zalgiris vann deildina heima fyrir.

Þór fékk martraðarbyrjun en Zalgiris komst yfir eftir tæplega mínútu. Þeir áttu skot í stöng og Vakaris Berenta fylgdi á eftir og skoraði af stuttu færi.

Gestirnir tvöfölduðu forystuna þegar Dovydas Eidukaitis skallaði boltann í netið. Þórsarar náðu að svara strax í kjölfarið þegar boltinn datt fyrir Ólíver Sesar Bjarnason og hann negldi boltanum í netið.

Vakaris Berenta bætti þriðja marki gestana við með skoti af löngu færi eftir mistök í vörn Þórs.

Þórsarar náðu að jafna metin þegar stundafjórðungur var til leiksloka. Stefán Björn Svavarsson skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Sverri Inga Pálssyni og tveimur mínútum síðar skoraði Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson eftir sendingu frá Peter Inga Helgasyni.

Adam var hins vegar ekki lengi í paradís því gestirnir skoruðu sigurmarkið strax í kjölfarið.

Liðin mætast aftur í Litháen þann 14. október í seinni leik liðanna.
Evrópukeppni unglingaliða: Þór tapaði í sjö marka leik
Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.