Fotbolti.net
08.10.20 - 15:32
Magnús Már Einarsson

Liverpool fær ungan markvörð frá Brasilíu

Marcelo Pitaluga (til vinstri).

Marcelo Pitaluga (til vinstri).

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur keypt markvörðinn unga Marcelo Pitaluga frá Fluminense í Brasilíu.

Pitaluga er 17 ára gamall en Muriel Becker, bróðir Alisson Becker, markvarðar Liverpool, gaf honum meðmæli.

Muriel er á mála hjá Fluminense eins og Marcelo var.
„Ég spurði Ali hvort bróðir hans gæti sagt okkur hvernig hann hefði verið að standa sig," sagði John Achterberg markmannsþjálfari Liverpool.

Pitaluga, sem vann HM U17 ára með Brasilíu í fyrra, mun æfa með aðalliði Liverpool og spila með unglingaliðum félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.