08.11.26 - 10:31
Brynjar Ingi Erluson
Glazer-fjölskyldan vill kaupa Al Ittihad

Glazer-fjölskyldan vill fjárfesta í Sádi-Arabíu

Mynd: EPA

Eigendur Manchester United hafa mikinn áhuga á að kaupa sádi-arabíska félagið Al Ittihad, sem er til sölu, en frá þessu greinir sádi-arabíski miðillinn Al-Riyadiyah.
PIF (ríkissjóður Sádi-Arabíu), hefur greint frá því að sjóðurinn sé opinn fyrir því að selja Al Ittihad og búist er við tilboðum frá að minnsta kosti þremur aðilum.
Samkvæmt sádi-arabíska miðlinum Al-Riyadiyah hefur Glazer-fjölskyldan, sem á Man Utd, mikinn áhuga á að kaupa Al Ittihad. Kaup á félaginu gætu jafnframt aukið líkurnar á því að fjölskyldan sé reiðubúin að selja United.
Glazer-fjölskyldan fer fyrir hópi fjárfesta sem hyggst leggja fram tilboð í Al Ittihad ásamt viðskiptamanninum Wael Jamjoom.
Annar fjárfestahópur er undir forystu Josh Harris, eiganda Philadelphia 76ers í NBA-deildinni, en hann er í samstarfi við prinsinn Saad bin Abdullah.
Þriðji hópurinn er leiddur af bræðrunum Abdulrahman og Sultan, sonum Khalid bin Mahfouz, sem er fyrrum heiðursfélagi Al Ittihad. Fjárfestingarfélögin Sidra Financial Company og BlueFive Capital eru einnig hluti af þeim hópi.
Samkvæmt heimildum Al-Riyadiyah þykir líklegast að hópurinn undir forystu Abdulrahman og Sultan hafi betur í kapphlaupinu um félagið. Tilboð þeirra er sagt það hæsta og jafnframt það hagstæðasta á pappírnum, en ekki er hægt að útiloka að annar hvor hinna fjárfestahópanna verði ofan á.