Fotbolti.net
09.02.22 - 17:13
Hafliði Breiðfjörð

Maciej Makuszewski vonar að Pólverjar flykkist á Leiknisvöll í sumar

Auglýsing
Maciej Makuszewski samdi við Leikni í dag.

Maciej Makuszewski samdi við Leikni í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Leiknir er gott félag með mikinn metnað. Ég hef talað mikið við formanninn og þjálfarann og tel þetta vera góðan stað til að vera á," sagði Maciej Makuszewski, pólskur leikmaður sem gekk til liðs við Leikni í dag.
Hann er 32 ára gamall kantmaður sem var kynntur á fréttamannafundi í Leiknisheimilinu í dag og er spenntur fyrir næstu árum í Breiðholtinu.

„Það er góð saga í félaginu og ég býst við að við getum gert góða hluti á næstu tímabilum. Vonandi mun ég eiga stórt hlutverk í liðinu og félaginu. Þetta er ný áskorun fyrir mig, ég vil vera góður innan sem utan vallar og vonandi munum við eiga gott tímabil."

Maciej kemur hingað frá Jagiellonia Bialystok í heimalandinu en var þar á undan hjá Lech Poznan í fjögur ár. En hvað vissi hann um Ísland og íslenskan fótbolta áður en hann kom hingað?

„Ég á marga vini hérna. Það eru margir Pólverjar sem búa hérna og áður en ákvað að skipta tók ég nokkur símtöl og talaði mikið við fólk. Ég hef heyrt margt gott og eitthvað slæmt. Ég tel samt að þetta verði gott fyrir mig, fótboltinn er það mikilvægasta og fjölskyldan mín verður í góðum málum hérna. Ég vonast eftir að eiga góðan feril hérna."

Í Breiðholtinu er spilað í 7 manna utandeild á Leiknisvelli á sumrin. Þar hafa sést leikmenn í pólskum treyjum með nafn Makuszewski á bakinu. Hann á greinilega marga aðdáendur hér líka?

„Kannski ekki marga en einhverja já. Ég vona að á þessu tímabili munu margir Pólverjar mæta á völlinn til að styðja Leikni. Vonandi spilum við vel og getum glatt stuðningsmenn félagsins."

„Vonandi munum við standa okkur vel, félagið er búið að fá sterka leikmenn og vonandi get ég líka gefið af mér, ég mun leggja mig allan fram og á mér draum sem ég vil ekki segja þér hver hann er. Það er leyndarmál en vonandi rætist hann."

Hjá Jagiellonia Bialystok spilaði hann með Böðvari Böðvarssyni sem spilaði hér á landi með FH á sínum tíma. Hann hefur einnig yfirgefið félagið fyrir Trelleborg í Svíþjóð.

„Ég spilaði með Böðvari Böðvarssyni bakverði. Hann er mjög góður náungi, við áttum virkilega gott samband en hann fór svo til Svíþjóðar. Hann er mjög skemmtilegur náungi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.