Fotbolti.net
09.04.13 - 11:30
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Þrír frá Man City

James Milner í leiknum í gær.

James Milner í leiknum í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er áhugaverð umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni þar sem mikilvægir fallslagir voru á dagskránni. Einnig var stórslagur milli Manchester United og Manchester City í gærkvöldi.

Garth Crooks, sérfræðingur BBC, sér um valið að þessu sinni en nokkuð er síðan við leituðum til hans.


Markvörður: Jussi Jaaskelainen (West Ham)
Það er ekki oft sem West Ham fer til Liverpool og kemur ekki tómhent til baka. Finnski markvörðurinn á stóarn þátt í að liðið fékk stig.

Varnarmaður; Matthew Lowton (Aston Villa)
Þvílíkt mark sem hann skoraði gegn Stoke!

Varnarmaður: Vincent Kompany (Man City)
Mikilvægi hans fyrir Manchester City er óumdeilt. Var frábær gegn United.

Varnarmaður: James Collins (West Ham)
Var mjög flottur gegn Luis Suarez og Daniel Sturridge.

Varnarmaður: Pablo Zabaleta (Man City)
Hefur átt frábært tímabil og var traustur sem klettur í gær.

Miðjumaður: Kevin Mirallas (Everton)
Nýtti sér óöruggi varnar Tottenham til að skora magnað mark eftir einstaklingsframtak.

Miðjumaður: Tomas Rosicky (Arsenal)
Það hefur ekki heyrst mikið frá Rosicky á þessu tímabili en hann hefur verið frábær í síðustu tveimur leikjum.

Miðjumaður: James Milner (Man City)
Besti leikur Milner í langan tíma. Gareth Barry átti einnig mjög góðan leik en rétt missir af sæti í liðinu.

Sóknarmaður: Gabriel Agbonlahor (Aston Villa)
Sífellt ógnandi í 3-1 sigri gegn Stoke.

Sóknarmaður: Papiss Cisse (Newcastle)
Upphaflega átti Emmanuel Adebayor að fá sæti í sókninni en Senegalinn Papiss Cisse sló hann út.

Sóknarmaður: Jay Rodriguez (Southampton)
Hefur skorað þrjú mörk og lagt tvö upp í síðustu þremur úrvalsdeildarleikjum.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.