Fotbolti.net
09.04.21 - 15:03
Magnús Már Einarsson

Helgi Guðjóns framlengir við Víking

Helgi Guðjóns framlengir við Víking
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Helgi Guðjónsson hefur framlengt samning sinn við Víking til þriggja ára.

Hinn 21 árs gamli Helgi kom til Víkings frá Fram fyrir síðasta tímabil.

Í fyrra skoraði Helgi eitt mark í tólf leikjum í Pepsi Max-deildinni en hann hefur verið iðinn við kolann í Lengjubikarnum í vetur.
„Þetta eru mikil gleðitíðindi, enda hefur Helgi verið einn af lykil leikmönnum liðsins á undirbúningstímabilinu og er ætlað stórt hlutverk í sumar," segir á Twitter síðu Víkings.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.