Fotbolti.net
04.10.26 - 13:06
Brynjar Ingi Erluson

Bjarni og Oskar með annan fótinn í B-deildinni

Bjarni Mark er að gera góða hluti með Trelleborg

Bjarni Mark er að gera góða hluti með Trelleborg

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Mark Antonsson, Oskar Sverrisson og félagar þeirra í Trelleborg eru komnir með annan fótinn í sænsku B-deildina eftir mikilvægan sigur á Olympic í dag.
Bjarni og Oskar, sem hafa báðir leikið með A-landsliðinu, voru í byrjunarliði Trelleborg sem vann mikilvægan 2-0 sigur á Olympic í Malmö í dag. Trelleborg leikur í suðurriðli sænsku C-deildarinnar.

Með sigrinum náði Trelleborg átta stiga forskoti á toppnum þegar fimm leikir eru eftir. Efsta sætið gefur sæti í B-deildinni og vonast liðið til að tryggja sér það í næstu tveimur leikjum, áður en það mætir Atvidaberg sem er í öðru sæti.

Sindri Kristinn Ólafsson stóð í marki Vasalund sem tapaði 4-1 fyrir Arlanda í norðurriðlinum. Vasalund er í 12. sæti með 27 stig, þremur stigum frá fallumspilssæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.