04.10.26 - 10:07
Brynjar Ingi Erluson
Juventus á eftir varnarmanni Liverpool - Hákon Rafn á förum frá Brentford?

Hákon Rafn er í Powerade-slúðurpakka dagsins

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Juventus vill fá Leoni frá Liverpool

Mynd: EPA

Það er margt bitastætt í Powerade-slúðurpakka dagsins og íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson er meðal leikmanna sem koma við sögu að þessu sinni.
Arsenal, Chelsea og Man Utd eru meðal sífellt fleiri félaga sem fylgjast með Igor Matanovic (23), framherja Freiburg í Þýskalandi. (CaughtOffside)
Juventus vill fá Giovanni Leoni (19), varnarmann Liverpool, en félagið vill fjölga ítölskum leikmönnum í hópnum. (Gazzetta dello Sport)
Newcastle United er tilbúið að leyfa enska miðjumanninum Joe Willock (27) að fara í janúar. Samningur hans rennur út að loknu tímabilinu og viðræður um framlengingu eru ekki hafnar. (Football Insider)
Tottenham hefur engin áform um að selja hollenska varnarmanninn Micky van de Ven (25), en Liverpool er sagt undirbúa tilboð í hann fyrir næsta sumar. (Football Insider)
AC Milan íhugar að bjóða í Yasin Ayari (22), miðjumann Brighton og sænska landsliðsins, sem arftaka Luka Modric (41) ef sá síðarnefndi ákveður að leggja skóna á hilluna. (Tuttosport)
Brighton og Bournemouth hafa sent njósnara til Medellín í Kólumbíu til að fylgjast með Neider Parra (21), varnarmanni Atlético Nacional. (El Deportivo)
Paul Barber, framkvæmdastjóri Brighton, hefur lagt á ráðin um hvernig félagið bregst við ef stærri félög sækjast eftir bestu leikmönnum þess. (Sky Sports)
Hákon Rafn Valdimarsson (24), markvörður Brentford og íslenska landsliðsins, mun íhuga að yfirgefa félagið ef hann fær ekki tækifæri á næstunni. (RÚV)
Roma vill fá brasilíska framherjann Endrick (20) á láni frá Real Madrid í janúar. Hann er sagður opinn fyrir því að fara til Ítalíu í leit að meiri spilatíma. (Corriere dello Sport)
Brasilíski vængmaðurinn Raphinha (29) og spænsku leikmennirnir Xavi Espart (19) og Marc Bernal (19) eru allir að ganga frá nýjum samningum við Barcelona. (Fabrizio Romano)