Fotbolti.net
04.10.26 - 12:29
Brynjar Ingi Erluson

Biðst afsökunar á að hafa fagnað því að sleppa við herskyldu

Gi-Hyuk er hér undir markverðinum í leik gegn Mexíkó á HM í sumar

Gi-Hyuk er hér undir markverðinum í leik gegn Mexíkó á HM í sumar

Canon

Mynd: EPA

Lee Gi-hyuk, fyrirliði Suður-Kóreu, hefur beðist innilegrar afsökunar á ummælum sínum eftir að liðið vann gull á Asíuleikunum um helgina.
Unnu Asíuleikana fjórða sinn í röð og sleppa við herskyldu
TENGT EFNI

Unnu Asíuleikana fjórða sinn í röð og sleppa við herskyldu

Suður-Kórea vann keppnina í fjórða sinn í röð eftir 1-0 sigur á Japan í úrslitaleiknum. Með gullinu tryggðu leikmennirnir sér undanþágu frá hefðbundinni herskyldu og geta því haldið áfram atvinnumennskunni án þess að þurfa að gera hlé á ferlinum hennar vegna.

„Ég fer ekki í herinn,“ sagði Gi-Hyuk glaður þegar hann fagnaði gullinu eftir leikinn. Ummælin féllu þó ekki öllum í kramið og hann var gagnrýndur á samfélagsmiðlum.

Líkamlega hæfir menn í Suður-Kóreu þurfa að gegna herskyldu í eitt og hálft til tvö ár áður en þeir verða 28 ára. Það getur sett stórt strik í reikninginn hjá þeim sem vilja spila fótbolta að atvinnu og því var mikið undir í úrslitaleiknum.

Gi-Hyuk, sem er 26 ára, hefur nú beðist afsökunar á því sem hann sagði í gleðinni eftir leikinn.

„Orð mín voru hugsunarlaus og svona á leikmaður og fyrirliði liðsins ekki að haga sér. Ég hefði ekki átt að segja þetta.“

„Ég bið stuðningsmenn sem eru að gegna herskyldu innilega afsökunar, sem og alla þá sem hafa stutt okkur. Ég er fullorðinn og hefði átt að hugsa áður en ég talaði. Ég sé eftir því að hafa verið svona kærulaus í orðum og mun halda áfram að líta í eigin barm.“

„Enn og aftur bið ég alla sem hafa stutt okkur innilega afsökunar, sem og þá sem leggja sig alla fram við að gegna herskyldu,“
sagði hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.