Fotbolti.net
04.10.26 - 11:38
Brynjar Ingi Erluson

Zidane: Tek ofan fyrir Ronaldo

Zidane og Ronaldo

Zidane og Ronaldo

Canon

Mynd: EPA

Zinedine Zidane, þjálfari franska landsliðsins, hrósaði Cristiano Ronaldo og sagði hann eiga skilið virðingu fyrir allt sem hann hefur áorkað á ferlinum. Ummælin koma í kjölfar þess að Ronaldo yfirgaf portúgalska landsliðshópinn.
Portúgalar skiptast í fylkingar vegna Ronaldo
TENGT EFNI

Portúgalar skiptast í fylkingar vegna Ronaldo

Ronaldo dró sig úr portúgalska landsliðshópnum eftir að hafa setið allan tímann á bekknum gegn Noregi í öðrum leik liðsins í þessu verkefni. Það var þó ekki bara bekkjarsetan sem fór illa í hann, heldur taldi hann Jorge Jesus landsliðsþjálfara hafa brotið samkomulag þeirra fyrir Þjóðadeildina.

Ronaldo ætlaði að spila báða heimaleikina en var tilbúinn að vera utan hóps í hinum tveimur leikjunum. Jesus sagðist hins vegar þurfa á honum að halda gegn Noregi en lét hann svo sitja á bekknum allan leikinn.

Ronaldo krafðist opinberrar afsökunarbeiðni en fékk hana ekki og yfirgaf því hópinn. Síðan hefur mikið verið rætt um málið og fólk skipst í fylkingar.

Portúgalska fótboltasambandið hefur einnig fengið gagnrýni fyrir meðferðina á Ronaldo, sem er langbesti leikmaður í sögu þjóðarinnar.

Zidane, sem þjálfaði Ronaldo hjá Real Madrid, hefur nú lagt orð í belg.

„Við verðum að heiðra þennan frábæra feril hans. Ég var heppinn að hafa hann hjá mér og hann hjálpaði mér að vinna marga titla.“

„Ég tek ofan fyrir Cristiano og hef alltaf borið ómælda virðingu fyrir þeim sem ég hef eytt tíma með,“
sagði Zidane.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.