04.10.26 - 13:36
Brynjar Ingi Erluson
„Spilaði undir getu á síðustu leiktíð“

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Franski varnarmaðurinn Jules Kounde hefur fengið minna að spila með Barcelona á þessari leiktíð en hann hafði vonast til en segist skilja ákvörðun þjálfarans.
Kounde er heill heilsu og í hópi franska landsliðsins sem hefur gengið vel í Þjóðadeildinni. Hann spilaði fyrsta leikinn gegn Tyrkjum en hefur verið á bekknum í síðustu tveimur leikjum.
Hann hefur líka fengið minna að spila hjá Barcelona en á síðustu leiktíð. Hansi Flick, þjálfari liðsins, hefur notað hann sparlega og Kounde segir góða og gilda ástæðu fyrir því.
„Þetta er ákvörðun þjálfarans. Mér finnst ég vera í frábæru líkamlegu formi og ég er ekki að glíma við nein meiðsli. Ef ég fæ minna að spila er það vegna þess að ég spilaði undir getu á síðustu leiktíð.“
„Ég tek þessu sem áskorun og mun halda áfram að leggja hart að mér eins og alltaf því það er undir mér komið að vera í mínu besta formi. Ég veit hvenær ég er upp á mitt besta og mun fá tækifæri til að sanna mig,“ sagði Kounde.