03.10.26 - 15:08
Brynjar Ingi Erluson
Fred: Ten Hag var algjört fífl

Erik ten Hag

Mynd: EPA

Fred

Mynd: EPA

Erik ten Hag

Mynd: EPA
Brasilíski miðjumaðurinn Fred segir Erik ten Hag ekki hafa verið í miklu uppáhaldi hjá leikmönnum Manchester United.
Fred lék undir stjórn Ten Hag sem tók við liðinu árið 2022, en Hollendingurinn var umdeildur í starfi þrátt fyrir að vinna tvo bikartitla.
„Ten Hag var mjög góður taktískt en algjört fífl í samskiptum við hópinn. Hann reifst við alla, mig, Cristiano, Casemiro og Rashford. Hann vildi ekki nota mig og stundum var álagið einfaldlega of mikið.“
„Hollensku leikmennirnir hans fengu alltaf að spila. Þjálfarateymið var eins og klíka en taktískt var hann einn sá besti sem ég hef unnið með. Hann vildi að liðið hlypi mikið en Cristiano var orðinn eldri. Hann tók hann því úr liðinu og þar hófst ágreiningurinn.“
„Fyrir leik sagði Ten Hag að Ronaldo væri á förum. Við gátum auðvitað ekkert gert en þegar flugvélin lenti eftir leikinn og við tókum flugstillinguna af sá fjölmiðlateymið að hann hafði farið í viðtal og gagnrýnt félagið harðlega. Þá fór allt til fjandans. Það varð algjör ringulreið og allir voru á hlaupum.“
„Ronaldo sagði hluti sem hann hefði kannski ekki átt að segja og næsta vika var vægast sagt ruglingsleg,“ sagði Fred.
Ronaldo yfirgaf Man Utd í nóvember 2022 en Ten Hag var látinn fara tæpum tveimur árum síðar eftir slaka byrjun á tímabilinu.