Fotbolti.net
04.10.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Klopp pirraður á fréttamönnum - „Þetta er fallegt kvöld"

Klopp pirraður á fréttamönnum - „Þetta er fallegt kvöld"
Canon

Mynd: EPA

Það andar köldu á milli Jurgen Klopp og þýskra fréttamanna. Hann sagði á sínum fyrsta fréttamannafundi að hann muni segja af sér ef fjölskyldan yrði skotmark fréttamanna.
Klopp mætti með stóran hóp í Þjóðadeildina en hanns skiptist í tvo 22 manna hópa. Seinni hópurinn spilaði í eina sigri liðsins til þessa gegn Serbíu í síðustu umferð.

Þýskir fréttamenn furða sig á því að Joshua Kimmich hafi ekki verið með í þeim leik.

„Þetta er svo fallegt kvöld. Án þess að minnast á það, þá eruð þið að reyna að vekja upp umræðuefni sem er í raun ekki umræðuefni. Og að lokum verður þetta saga um Kimmich. Þið munið ná því, er það ekki? Pavlovic, Bischof, Wirtz – það virkaði frábærlega," sagði Klopp.

„VIð þurfum mismunandi uppbyggingu, leiðtoga, leikmenn með mikið þrek, skapandi leikmenn, alls konar hluti. Við spiluðum mjög góðan leik. Það er rökrétt að spurningin hafi komið upp, mér fannst þetta bara svolítið snemmt. Spurning tvö eða þrjú var þegar farin að stefna í þessa átt. Þess vegna langaði mig að tjá mig um þetta."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.