Fotbolti.net
03.10.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Scholes: Andskotinn hafi það, ég vil medalíu

Scholes: Andskotinn hafi það, ég vil medalíu
Canon

Mynd: EPA

Nokkrir fyrrum leikmenn Man Utd hafa tjáð sig eftir að Man City var fundið sekt af nánast öllum ákærum vegna fjárhagsbrota.

Wayne Rooney sagði að hann myndi ekki þyggja gullmedalíu ef titillinn yrði tekinn af Manchester City og Manchester United krýnt Englandsmeistari fyrir tímabilið 2011-12.
Rooney: Eigum ekki skilið að fá titilinn frá 2012
TENGT EFNI

Rooney: Eigum ekki skilið að fá titilinn frá 2012

Rio Ferdinand og David de Gea, fyrrum liðsfélagar hans, hafa báðir sagt það opinberlega að þeir vilji fá titilinn frá 2012. Paul Scholes hefur bæst í hópinn.

„Ég heyrði nokkra fyrrverandi liðsfélaga segja að þeir vilji að bikarar verði teknir af þeim, en þeir vilja ekki verðlaunapeningana sína. Andskotinn hafi það, ég er gráðug tík, ég vil medalíuna mína,“ skrifaði Scholes á Instagram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.