Fotbolti.net
04.10.26 - 12:00
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Aðeins tveir fljótari en Orri að skora 12 mörk fyrir Ísland

Orri Steinn Óskarsson fagnar öðru markanna gegn Búlgaríu.

Orri Steinn Óskarsson fagnar öðru markanna gegn Búlgaríu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aðeins tveir landsliðsmenn Íslands í karlaflokki hafa verið fljótari að skora tólf mörk fyrir A-landsliðið en Orri Steinn Óskarsson.

Orri skoraði sitt ellefta og tólfta landsliðsmark í sigrinum gegn Búlgaríu á Laugardalsvellinum í gær, 3-0, og hefur náð þessum markafjölda í aðeins 21 landsleik.

Hann er kominn með þrjú mörk í þremur leikjum Íslands í Þjóðadeildinni í haust og hefur alls skorað fimm af þeim tíu mörkum sem landsliðið hefur skorað á þessu ári.

Þó Orri sé einungis nýorðinn 22 ára gamall er hann nú kominn í 11. sætið á listanum yfir markahæstu leikmenn landsins frá upphafi og deilir því sæti með þremur öðrum. Einn þeirra er samherji hans í framlínu Íslands í dag, Andri Lucas Guðjohnsen, sem skoraði sitt tólfta mark í sigrinum í Lúxemborg á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.