04.10.26 - 11:38
Brynjar Ingi Erluson
U21 komst ekki til Færeyja

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það er komið babb í bátinn hjá U21 árs landsliði karla fyrir mikilvægan leik gegn Færeyjum í undankeppni Evrópumótsins á þriðjudag. Þar er sæti í umspili um sæti á lokamótinu í húfi.
Ísland vann stóran og afar mikilvægan 5-1 sigur á Sviss á dögunum og fram undan er alger úrslitaleikur við Færeyjum um annað sæti riðilsins.
Landsliðið átti að fljúga til Færeyja í dag en fluginu var aflýst þar sem ekki er hægt að lenda vegna veðurs. Samkvæmt KSÍ standa vonir til þess að hægt verði að fljúga á morgun. Færeyska fótboltasambandið og UEFA hafa verið upplýst um stöðuna.
Ísland þarf að vinna Færeyjar á þriðjudag og treysta á að Sviss nái ekki að vinna Frakkland. Gangi það eftir tryggir Ísland sér sæti í umspilið og færist því nær því að komast á Evrópumótið í þriðja sinn í sögunni.