Fotbolti.net
03.10.26 - 23:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Robertson sló á létta strengi - „Dalglish var hræddur um markametið"

Robertson sló á létta strengi - „Dalglish var hræddur um markametið"
Canon

Mynd: EPA

Andy Robertson, fyrirliði skoska landsliðsins, spilaði hundraðasta landsleikinn sinn í 2-0 sigri á Norður-Makedóníu í kvöld.

Robertson er næst leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins en aðeins Kenny Dalglish, fyrrum leikmaður Liverpool, spilaði fleiri leiki eða 102 talsins.
„Þetta hefur mikla þýðingu fyrir mig og fjölskylduna. Ég hef verið í burtu hundrað sinnum, ég vorkenni konunni minni. Þetta hefur verið magnað ferðalag. Ég man eftir fyrsta leiknum og þetta hefur verið vegferð síðan þá," sagði Robertson.

Dalglish er markahæstur í sögu landsliðsins með 30 mörk en Robertson hefur skorað fjögur.

„Ég elska þessa þjóð, það er aðeins ein manneskja á undan mér svo þetta er sérstakt afrek. Ég hélt að Dalglish yrði hræddur um markametið sitt fyrstu mínúturnar. Ég átti einhver sex skot," sagði Robertson léttur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.