Fotbolti.net
09.09.18 - 19:21
Mist Rúnarsdóttir

Gabriela Mencotti: Hef notið hverrar sekúndu á Íslandi

Auglýsing
Gabriela hefur átt frábært sumar hjá Þrótti og er markahæst í Inkasso-deildinni

Gabriela hefur átt frábært sumar hjá Þrótti og er markahæst í Inkasso-deildinni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Mér fannst við standa okkur vel. Það vantaði mikið í liðið hjá okkur og margar nýjar fengu tækifæri en mér fannst liðið standa sig vel,“ sagði hin öfluga Gabriela Maria Mencotti, eftir að hafa þurft að sætta sig við 2-0 tap gegn Haukum á heimavelli.
Eins og Gabriela nefnir þá var lið Þróttar mikið breytt í dag. Lykilmenn fjarverandi en í þeirra stað fengu ungir leikmenn tækifæri og sem dæmi má nefna að fjórar stúlkur fæddar 2003, á yngra ári í 3. flokki, byrjuðu leikinn og ein til viðbótar kom inná sem varamaður.

„Við höfum ekki spilað mikið saman en við reyndum að þétta okkur sem lið í vikunni og ná góðum æfingum. Það tekur tíma en mér fannst við ná að þjappa okkur vel saman á þeim stutta tíma sem höfðum til undirbúnings.“

„Margir áttu von á að við myndum tapa stærra en við stóðum okkur vel. Við fengum færi sem við hefðum getað nýtt og þurfum að laga það. Heilt yfir vorum við flottar.“


Tapið þýðir að Þróttarkonur geta ekki komist hærra í töflunni og enda í 4. sæti sama hvernig fer í lokaumferðinni. Gabriela er þokkalega sátt við þá niðurstöðu.

„4. sætið er ágætur staður til að vera á. Ég veit að liðið missti svolítið af leikmönnum frá síðasta tímabili en nýjir leikmenn hafa komið vel inn. Við höfum staðið okkur vel gegn bestu liðunum eins og öllum liðum í deildinni.“

Þetta er fyrsta sumarið hennar Gabrielu á Íslandi en hún hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í deildinni. Hún leikur yfirleitt sem miðjumaður en er engu síður markahæst í deildinni með 17 mörk í 17 leikjum. Gabriela hefur notið tímans á Íslandi og þakkar liðsfélögunum fyrir sinn þátt í markaskoruninni.

„Þetta er fyrsta tímabilið mitt á Íslandi og ég hef notið hverrar sekúndu. Þetta hefur verið frábær tími, ég ætla að njóta vikunnar og við náum vonandi að vinna á föstudaginn,“ sagði Gabriela meðal annars en hún segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvar hún spili næsta sumar. Ísland komi vel til greina en hún heldur heim til Bandaríkjanna í haust og skoðar sín mál.

Hægt er að horfa á allt viðtalið við Gabrielu í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.