Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 10. janúar 2021 18:52
Ívan Guðjón Baldursson
FA-bikarinn: Auðvelt fyrir Tottenham gegn Marine
Mynd: Getty Images
Marine 0 - 5 Tottenham
0-1 Carlos Vinicius ('24)
0-2 Carlos Vinicius ('30)
0-3 Lucas Moura ('32)
0-4 Carlos Vinicius ('37)
0-5 Alfie Devine ('60)

Tottenham rúllaði yfir utandeildarlið Marine í enska bikarnum í dag þar sem Carlos Vinicius skoraði þrennu í fyrri hálfleik.

Gæðamunur liðanna var augljós og var sigur Tottenham aldrei í hættu.

Lucas Moura komst einnig á blað ásamt hinum 16 ára gamla Alfie Devine, sem varð þar með yngsti leikmaðurinn til að spila keppnisleik með Tottenham og um leið sá yngsti til að skora fyrir félagið.

Lokatölur urðu 0-5 og fer Tottenham auðveldlega áfram í næstu umferð bikarsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner