Fotbolti.net
11.11.26 - 17:25
Kári Snorrason

Gylfi ræðir agabrotin - „Mikilvægt að byggja upp spennu og jákvæða stemningu í kringum liðið“

„Vonandi að menn læri bara af þessu og að þetta geri leikmenn þroskaðri og reyndari.“

„Vonandi að menn læri bara af þessu og að þetta geri leikmenn þroskaðri og reyndari.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
„Það er mikilvægt fyrir okkur að byggja upp spennu og jákvæða stemningu í kringum liðið. En það er bara undir okkur komið að ná í úrslit,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson í samtali við Fótbolta.net á Spáni í gærkvöldi.

Íslenska landsliðið mætir Búlgaríu ytra og Lúxemborg heima í síðustu tveimur leikjum liðsins í C-deild Þjóðadeildarinnar. Ísland er á toppi riðilsins með tveggja stiga forystu á Eistland.

Vinni Ísland riðilinn fer liðið beint upp í B-deildina og möguleiki er að sigur í riðlinum tryggi umspil um sæti á EM 2028. Gylfi kvaðst vera spenntur fyrir leikjunum tveimur.

„Þetta leggst vel í mig, spennandi tveir leikir. Örugglega erfiður útileikur. Mikilvægt að vinna hann og eiga síðan svona úrslitaleik heima. Vonandi verður það þannig að við náum í þrjú stig og eigum síðan bara spennandi leik heima á móti Lúxemborg,“ sagði Gylfi.
Nýta agabrotin á jákvæðan hátt
Gylfi var spurður út í agabrotin sem áttu sér stað í síðasta glugga. Hann segir það ekki koma með aukna pressu á liðið og hann vonar að brotin komi liðinu til góðs síðar meir.

„Við erum búnir að bæði ræða saman sem leikmenn og með þjálfurum og staffinu. Fyrir okkur þá er þessu máli lokið. Vonandi að menn læri bara af þessu og að þetta geri leikmenn þroskaðri og reyndari. Að liðið verði öflugra, einbeittara og að þetta muni nýtast okkur á jákvæðan hátt.

Þetta er ekkert í fyrsta og ekki síðasta skipti sem einhverjir gera mistök í liðum, hvort það sé í fótbolta eða öðrum íþróttum. En menn vonandi læra af þessu.Við getum vonandi nýtt þetta á jákvæðan hátt og gert betur.“


„Skemmtilegasta sem ég geri að spila fyrir Ísland“
Gylfi hefur nú unnið Íslandsmeistaratitilinn tvö ár í röð og var hann spurður hvað það er sem heldur honum hungruðum í að halda áfram. „Að vinna þrjú ár í röð,“ sagði Gylfi léttur og hélt áfram.

„Það er svona það helsta þegar ég horfi kannski á félagsliðið, vinna bikarinn líka. Það er Evrópukeppnin líka. Mikilvægt fyrir klúbbinn að komast eins langt og þeir komust rétt áður en ég kom til Víkings. Það er náttúrulega risastórt fyrir klúbbinn, risastórt fyrir íslenskan fótbolta.

Og það er auðvitað eitthvað sem að mig langar að vera hluti af. En síðan auðvitað bara að vera með landsliðinu líka. Skemmtilegasta sem ég geri er að spila fyrir Ísland. Blanda af þessu öllu saman er það sem heldur mér gangandi,“
sagði Gylfi að lokum.
Ísland mætir Búlgaríu og Lúxemborg í verkefninu.

Ísland mætir Búlgaríu og Lúxemborg í verkefninu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Vill vinna Íslandsmeistaratitilinn þrisvar í röð.

Vill vinna Íslandsmeistaratitilinn þrisvar í röð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi mætti fyrr út og æfði einn: Ekkert það skemmtilegasta í heimi

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.