11.11.26 - 15:02
Kári Snorrason
„Staðan“ væntanleg á Samsungvöllinn - „Vil leiðrétta alla þá sem halda að þetta sé dúfufagn“

Ítrekar að ekki sé um dúfufagn að ræða.

Mynd: ÍR

Ítrekar að ekki sé um dúfufagn að ræða.

Mynd: ÍR
Bergvin Fannar Helgason gekk nýverið í raðir Stjörnunnar frá ÍR. Bergvin, sem er 23 ára gamall framherji, hefur verið iðinn við kolann í Lengjudeildinni síðustu ár og hefur fagn hans vakið athygli þar sem hann minnir á eins konar dúfu.
Fótbolti.net ræddi við Bergvin í gær og spurði hann út í fagnið góða. Þar leiðrétti Bergvin meðal annars undirritaðan og sagði fagnið ekki vera tileinkað dúfum landsins.
Fótbolti.net ræddi við Bergvin í gær og spurði hann út í fagnið góða. Þar leiðrétti Bergvin meðal annars undirritaðan og sagði fagnið ekki vera tileinkað dúfum landsins.
„Það má svo sannarlega búast við því í Bestu deildinni næsta sumar. En ég ætla að leiðrétta alla þá sem halda að þetta sé dúfufagn. Þetta er „Staðan”. Fagnið heitir það og ég vil leiðrétta þann misskilning,“ sagði Bergvin.
Aðspurður um hvaðan „Staðan“ kemur segir Bergvin það vera einkahúmor í vinahópnum.
Skrautleg fögn hafa tíðkast á Samsungvellinum en tímabilið 2010 vakti liðið mikla athygli fyrir fögn sín. Liðið tók meðal annars vinsælt laxafagn, klósettfagn og líkti eftir fæðingu.