11.11.26 - 16:25
Kári Snorrason
Daníel Tristan: Ekkert eðlilega spenntur að fá Grikkina í kuldann
Auglýsing

Skoraði fjögur í síðasta glugga með U21.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Það skemmtilega við þetta er að það er svo mikil óvissa.“

„Þetta er bara ógeðslega spennandi, ég er ekkert eðlilega spenntur að spila á morgun að fá Grikkina hérna í kuldann,“ sagði Daníel Tristan Guðjohnsen í samtali við Fótbolta.net í morgun fyrir æfingu U21 landsliðsins.
Liðið mætir því gríska í hádeginu á morgun í fyrri viðureign liðanna í umspili upp á sæti á EM í Albaníu og Serbíu næsta sumar.

Óvissan skemmtileg
„Það skemmtilega við þetta er að það er svo mikil óvissa. Maður vissi hvernig Frakkarnir spiluðu og öll þessi lið sem við vorum með í riðli. Nú er smá meiri óvissa með hvernig þeir spila og það er ógeðslega gaman,“ segir Daníel og var spurður nánar út í Grikkina.
„Ég held að þetta sé hörkulið. Þeir sýndu það alveg í sínum riðli að þeir eru mjög góðir. Voru góðir á móti Þýskalandi. Ég býst við hörkuleik.“
Daníel fór á kostum í síðasta verkefni með U21 þar sem hann skoraði fjögur mörk í þremur leikjum. „Ég er ánægður með mig og allt liðið. Við vorum geggjaðir í síðasta verkefni. Þetta er geggjuð liðsheild og geggjað lið. Við erum með marga góða leikmenn,“ sagði Daníel.
Staðan í Malmö allt í lagi
Daníel er leikmaður Malmö og hefur hann spilað 20 leiki með liðinu á tímabilinu. Hann hefur aðeins byrjað sex leiki af þeim 20, hann var spurður út í hvernig mál stæðu í Svíþjóð.
„Staðan er allt í lagi. Maður er búinn að vera koma inn á. Og er búinn að vera fá nóg af mínútum til þess að sýna mig og sanna. En maður væri auðvitað til að byrja fleiri leiki og allt það. En þetta er bara staðan og maður verður að halda áfram.“
Einhver möguleiki að þú farir frá Malmö í janúar?
„Ég veit það ekki. Það verður að koma í ljós. Ég er ekkert búinn að vera pæla mikið í því. Ég er ekki búinn að skoða það, það verður að koma í ljós,“ sagði Daníel að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.