11.11.26 - 15:59
Kári Snorrason
Hlynur opinn fyrir því að vera áfram á Íslandi
Auglýsing

Kom til Breiðabliks á láni frá Brommapojkarna í sumarglugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

U21 landsliðið mætir Grikklandi á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Við vorum með mjög gott samband“

Hlynur Freyr Karlsson lék á láni með Breiðabliki seinni hluta sumars frá sænska félaginu Brommapojkarna. Lánssamningur hans hefur nú runnið út og segir hann framtíðina óljósa.
Samningur hans við sænska félagið rennur út eftir rúmt ár en óvíst hvort að hann verði þar áfram.
Fótbolti.net ræddi við Hlyn fyrr í dag fyrir æfingu U21-landsliðsins sem mætir Grikklandi í fyrri viðureign liðanna í umspili upp á að komast á EM í Albaníu og Serbíu á næsta ári.

TENGT EFNI
Vill festa Hlyn til lengri tíma - „Alveg klárt að við munum styrkja með nokkrum mönnum"
„Ég eiginlega veit það ekki. Er bara slakur núna og klára þessa landsleiki. Svo kemur bara í ljós hvað gerist, ég er ekki mikið að stressa mig á þessu,“ segir Hlynur aðspurður um hvað framtíðin bæri í skauti sér.
Lítið heyrt í Svíunum
Hlynur hafði spilað reglulega með Brommapojkarna tímabilin 2024 og 2025 en hlutverk hans minnkaði verulega í upphafi þessa tímabils. Hann segist lítið hafa heyrt frá félaginu upp á síðkastið.
„Ég á ár eftir að samningi. Ég veit það ekki ef ég á að vera hreinskilinn. Ég er ekki búinn að heyra mikið í þeim úti og það verður eiginlega að koma í ljós. Ég heyri örugglega í þeim betur þegar tímabilið í Svíþjóð klárast.“
Opinn fyrir að halda sér heima
Eyjólfur Héðinsson, yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki, sagði í samtali við Fótbolta.net nýverið að Breiðablik hefði áhuga á að festa Hlyn til lengri tíma. Sjálfur segist hann vera opinn fyrir því að vera áfram á Íslandi.
„Já, ég er alltaf opinn fyrir því. En eins og ég segi þá vil ég ekkert gefa of mikið upp hvað ég vil gera. Ég er bara rólegur og sé til hvað gerist,“ segir Hlynur.
Sér eftir Óla Skúla
Ólafur Ingi Skúlason lét á dögunum af störfum sem þjálfari Breiðabliks. Hlynur segir það hafa verið leiðinleg tíðindi.
„Já, að sjálfsögðu er alltaf leiðinlegt þegar menn missa vinnuna. Sérstaklega Óli, við vorum með mjög gott samband þannig það er mjög leiðinlegt. Það kemur bara nýr þjálfari og ekkert mikið hægt að segja um það. Eins leiðinlegt og það er að þá er þetta hluti af þessari íþrótt,“ segir Hlynur og var í kjölfarið spurður hvort Jökull Elísabetarson væri spennandi þjálfari.
„Klárlega, hann þekkir fótbolta og kann það. Þannig þetta verður spennandi.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.