11.11.26 - 17:30
Kári Snorrason
Skemmtilegra að horfa á Ajax á móti AZ en Manchester-slaginn

Hefur verið í stóru hlutverki hjá Excelsior.

Mynd: Excelsior

„Mér finnst eiginlega skemmtilegra að horfa á Ajax - AZ Alkmaar heldur en Man City - Man Utd. “

Mynd: EPA

Ágúst Orri Þorsteinsson var í sumar keyptur til hollenska liðsins Excelsior frá Breiðabliki. Ágúst, sem er 21 árs gamall kantmaður, hefur spilað níu leiki með liðinu í deild og þar af byrjað átta þeirra.
Hann er nú staddur á Íslandi með U21-landsliðinu sem mætir Grikklandi á morgun í fyrri umspilsleik liðanna upp á að komast á EM í Albaníu og Serbíu næsta sumar.
Fótbolti.net ræddi við kappann á æfingu U21-landsliðsins í morgun og spurði hann hvernig lífið í Hollandi væri að fara með hann.

TENGT EFNI
Útskýrir hvers vegna hann gaf ekki kost á sér - „Ekkert eðlilega erfitt að horfa á þá spila“
„Það gekk mjög vel í byrjun. Vorum að vinna leiki en síðan er aðeins erfiðara núna og við erum ekki búnir að vinna í nokkrum leikjum í röð. En ég veit að við erum með mjög gott lið þannig að við erum bara að hugsa um næsta leik. Það var mjög góð frammistaða í síðasta leik, á móti Go Ahead Eagles, en við töpuðum eitt núll. Þannig að maður er ekkert að stressa sig á þessu. Ég er að spila mikið þannig að já, ég er bara mjög sáttur,“ segir Ágúst aðspurður um fyrstu mánuðina í Hollandi.
Ágúst var strax kominn í stórt hlutverk hjá Excelsior eftir að hann var keyptur og segir hann það hafa komið skemmtilega á óvart.
„Já, auðvitað kom það alveg á óvart. Þetta er náttúrulega miklu betri staður og miklu meiri gæði í deildinni. Það kom á óvart að spila fyrsta leikinn einhvern veginn og rugluð læti. Maður hefur ekkert upplifað þetta áður. Það er bara geggjað að fá að spila og ég vona bara að ég haldi áfram að gera það,“ segir Ágúst og er hann hrifinn af hollenska boltanum.
„Mér finnst þessi hollenski bolti er bara mjög skemmtilegur sko. Það er mikil pressa, alltaf bara maður á mann eiginlega. Þannig að þetta er mjög skemmtilegt og skemmtilegt að horfa á þessa deild. Ég er kominn inn í hana, mér finnst eiginlega skemmtilegra að horfa á Ajax - AZ Alkmaar heldur en Man City - Man Utd. Það er bara staðan,“ segir Ágúst léttur.