10.11.26 - 18:45
Brynjar Ingi Erluson
Segir Man Utd til sölu - „Glazer-fjölskyldan er hörð í horn að taka“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester United er til sölu, ef marka má orð Stefan Borson, sérfræðings í fjármálum fótboltafélaga, í viðtali við talkSPORT.
Stuðningsmenn United hafa lengi kallað eftir því að Glazer-fjölskyldan selji félagið og nýir eigendur taki við stjórnartaumunum.
Borson segir að söluferli sé þegar hafið og að leitað sé að kaupanda sem er tilbúinn að greiða um fimm milljarða punda fyrir félagið.
„Ég hef fengið þær upplýsingar frá háttsettum aðila í fótboltaheiminum að söluferli sé í gangi og félagið sé til sölu.“
„Maður veltir því auðvitað fyrir sér hvers vegna þeir gera þetta ekki opinbert, en það er svo sem skiljanlegt. Síðast þegar þeir gerðu það urðu niðurstöðurnar töluverð vonbrigði (þegar þeir seldu hlutinn til Ratcliffe).“
„Þeir eru líklega að prófa aðra nálgun í þetta sinn með því að halda söluferlinu óformlegu. Þeir virðast hins vegar hafa sætt sig við að nú sé rétti tíminn til að selja. Glazer-fjölskyldan er þó hörð í horn að taka og mun ekki láta félagið af hendi fyrr en einhver er tilbúinn að greiða uppsett verð,“ sagði Borson á talkSPORT.
Glazer-fjölskyldan keypti United árið 2003 en seldi 27,7 prósenta hlut í félaginu til Sir Jim Ratcliffe í febrúar 2024.