Fotbolti.net
10.02.14 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Liverpool á þrjá

Skrtel er í liðinu eftir tvö mörk gegn Arsenal.

Skrtel er í liðinu eftir tvö mörk gegn Arsenal.

Canon

Mynd: Glogster.com

Heil umferð var á dagksrá í ensku úrvalsdeildinni um helgina og Garth Crooks hjá BBC hefur birt lið helgarinnar.

Liverpool á þrjá fulltrúa eftir 5-1 sigurinn á Arsenal og bæði Chelsea og Crystal Palace eiga einnig tvo fulltrúa.


Markvörður: Julian Speroni, Crystal Palace
Speroni átti flottan dag í marki Crystal Palace gegn WBA.

Hægri bakvörður: Branislav Ivanovic, Chelsea
Eftir að hafa skorað gegn Manchester City fyrir viku þá átti Ivanovic frábæran leik í sigrinum á Newcastle.

Miðvörður: Martin Skrtel, Liverpool
Skrtel skoraði tvö á fyrstu tíu mínútunum gegn Arsenal og var fastur fyrir í vörninni.

Miðvörður: Ashley Williams, Swansea
Swansea sigraði Cardiff í grannaslagnum í Wales um helgina og Williams hjálpaði liðinu að halda hreinu.

Vinstri bakvörður: Martin Olsson, Norwich
Olsson hjálpaði Norwich að halda hreinu og ná markalausu jafntefli gegn Chelsea.

Miðjumaður: Philippe Coutinho, Liverpool:
Coutinho átti flottan dag á miðjunni hjá Liverpool í 5-1 sigrinum á Arsenal.

Miðjumaður: Kevin Nolan, West Ham:
Nolan skoraði bæði mörk West Ham í 2-0 útisigri á Villa Park og náði að drífa liðsfélaga sína áfram.

Miðjumaður: Eden Hazard, Chelsea:
Hazard er að sjálfsögðu í liðinu eftir þrennuna gegn Newcastle

Framherji: Raheem Sterling, Liverpool:
Sterling ógnar stöðugt með hraða sínum og krafti og hann skoraði tvö gegn Arsenal.

Framherji: Emmanuel Adebayor, Tottenham:
Adebayor hefur skilað sínu síðan Tim Sherwood gaf honum sénsinn og hann skoraði sigurmarkið gegn Everton.

Framherji: Tom Ince, Crystal Palace:
Ince var gífurlega sprækur í sínum fyrsta leik með Palace en hann skoraði í sigri liðsins gegn WBA.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Eden Hazard og Branislav Ivanovic eru báðir í liðinu.

Eden Hazard og Branislav Ivanovic eru báðir í liðinu.

Canon

Mynd: Twitter

Adebayor er frammi.

Adebayor er frammi.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.