Þorsteinn Ólafsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Íslands, lést þann 5. júní síðastliðinn. Hann var 75 ára gamall þegar hann féll frá.
Þorsteinn hóf ungur að stunda fótbolta og hóf hann feril sinn sem markvörður hjá ÍBK/Keflavík og í framhaldinu hjá Perstorps SK í Svíþjóð. Atvinnumannaferill Þorsteins hófst árið 1980 með samningi við IFK Göteborg þegar Sven-Göran Eriksson, sem átti síðar eftir að gerast landsliðsþjálfari Englands, var að þjálfa liðið. Atvinnumannaferillinn hjá Þorsteini endaði sviplega með slæmu fótbroti í æfingaleik fyrir keppnistímabilið 1981. Þorsteinn átti stutt tímabil með IFK Trollhättan áður en hann gerði samning við Þór á Akureyri og var þá alkominn heim.
Þegar leikmannaferillinn var að klárast sneri Þorsteinn sér að þjálfun, hann var spilandi þjálfari með Þór Akureyri, þjálfari Magna, Keflavíkur og Víðis í Garði. Hann lauk ferlinum 1992 sem spilandi þjálfari með Haukum.
Þorsteinn varð Íslandsmeistari með gullaldarliði ÍBK árin 1969, 1971 og 1973 og síðar bikarmeistari árið 1975. Á ferlinum spilaði Þorsteinn á móti stærstu félögum í Evrópu, eins og Real Madrid, Arsenal og Everton svo eitthvað sé nefnt.
Þorsteinn átti þá að baki 16 landsleiki fyrir Ísland á árunum 1971 til 1980.
Utan vallar gerði Þorsteinn ekki síður glæsilega hluti. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972 og síðar prófi í efnafræði frá Lundarháskóla í Svíþjóð árið 1977. Hann starfaði sem efnafræðingur hjá lyfjafyrirtækinu AB Hässle í Gautaborg og eftir heimkomu frá Svíþjóð hóf hann störf hjá Efnaverksmiðjunni Sjöfn á Akureyri. Þegar yngsta dóttir Þorsteins greindist með hvítblæði 1988 söðlaði hann um og kom að stofnun Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna (SKB) ásamt öðrum foreldrum barna með krabbamein. Hann varð fyrsti formaður og framkvæmdastjóri félagsins. Starfsferlinum lauk Þorsteinn hjá Olís en þar starfaði hann til fjölda ára. Þá var Þorsteinn meðlimur Oddfellowreglunnar um árabil og allt til aldursloka.
Eftirlifandi eiginkona Þorsteins er Guðný Eiríksdóttir fædd 1953. Með fyrri eiginkonu, Katrínu S. Guðjónsdóttur, átti Þorsteinn dæturnar Sólveigu, Höllu, Stellu Maris og Söndru. Synir Guðnýjar og stjúpsynir Þorsteins eru Guðbjörn og Bjarki. Barnabörn Þorsteins eru 15 og barnabarnabörnin eru sjö talsins.
Fótbolti.net sendir aðstandendum Þorsteins innilegar samúðarkveðjur.



