Fotbolti.net
10.07.20 - 23:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Björgvin Karl eftir 7-1 tap: Mjög sáttur með liðið mitt

Auglýsing
Björgvin Karl á hliðarlínunni.

Björgvin Karl á hliðarlínunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
<i>„Við komum til að reyna að spila fótbolta og ég er mjög sáttur með liðið mitt þrátt fyrir að við töpuðum 7-1,"</I> sagði Björgvin Karl Gunnarsson, þjálfari Fjarðab/Hattar/Leiknis eftir tap gegn Haukum í Mjólkurbikarnum.

Fjarðab/Höttur/Leiknir, sem leikur í 2. deild, kom á Ásvelli og spilaði við Hauka sem eru í þriðja sæti Lengjudeildarinnir. Gestirnir héldu í við Hauka framan af, en misstu svo tökin þegar líða fór á leikinn.
„Við ætluðum að reyna að halda hreinu sem lengst, en það gekk nú ekki. Við gáfumst ekki upp og lengi vel var staðan bara 2-0. Við eigum leik á þriðjudaginn og aðalatriðið var að reyna að komast í gengum þennan leik án þess að leikmenn myndu meiðast. Það gekk eftir."

„Það er þreyta í hópnum, lítill hópur og við erum búin að spila mikið af leikjum. Það vantar enn fimm leikmenn í liðið okkar og við eigum helling inni."

Um skilaboð til liðsins í klefanum eftir leik sagði Björgvin Karl: „Skilaboðin voru þau að ég var áfaklega ánægður með framfarir frá því í síðasta leik. Við áttum ágætis spilkafla. Ég sé að við getum gert alveg helling við þetta."

Viðtölin eru í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.