Í fimmtu efstu deild í Eistlandi er fótboltalið sem virðist hafa sótt nafn sitt til Íslands en það ber nafnið RL. AFC Eyjafjallajökull.
Á dögunum tapaði liðið 24-0 gegn úrvalsdeildarliði Paide Linnameeskond í bikarnum í Eistlandi.
Á dögunum tapaði liðið 24-0 gegn úrvalsdeildarliði Paide Linnameeskond í bikarnum í Eistlandi.
Jónas Thor Gudmundsson vekur athygli á þessu á Facebook síðunni Algjörlega óáhugaverðar fótboltaupplýsingar.
„Þó svo að knattspyrnuliðið beri íslenskt heiti, þá er enginn Íslendingur sem spilar með liðinu eins og er," segir Jonas í færslu þar.
„Helsti markaskorari liðsins eftir þrjá leiki er Georg-Eric Kurus, sem spilaði með Levadia. Levadia spilaði einmitt við Stjörnuna í Evrópukeppninni í fyrra - en fyrrnefndur Kurus var þó ekki í hóp Levadia í þeim leikjum."
Athugasemdir