03.10.26 - 20:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hákon heiðarlegur: Átti að fara á Ísak
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska landsliðið vann sannfærandi 3-0 sigur á Búlgaríu í Þjóðadeildinni í dag. Hákon Arnar Haraldsson lagði upp fyrsta markið á Orra Stein Óskarsson. Hákon sendi á Ísak Bergmann en hann lét boltann fara á Orra.
„Ef ég á að vera heiðarlegur þá átti þetta að fara á Ísak. Hann sá greinilega að Orri var bakvið hann og gerði gríðarlega vel að láta hann fara. Orri kláraði þetta ógeðslega vel," sagði Hákon.
Ísland er á toppnum með tveggja stiga forystu á Eistland. Ísland mætir Eistum ytra á þriðjudaginn.
„Eins og við gerðum á móti Lúxemborg. Vorum drullu grimmir og líka í dag, unnum helling af seinni boltum og fyrri boltum, landsliðsbolti er mikið þannig. Vorum smá 'soft' á móti Eistum, þurfum að negla þá á þriðjudaginn," sagði Hákon.

Ísak á allavega að fá hálfa stoðsendingu fyrir þetta dummy.
— Ingvi Þór Sæmundsson (@ingvithors) October 3, 2026