03.10.26 - 20:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þjóðadeildin: Yamal með glæsilegt mark í sigri Spánverja

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spánn hafði betur gegn Tekklandi í riðli þrjú í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.
Lamine Yamal kom Spánverjum yfir snemma leiks þegar hann skoraði með glæsilegu skoti úr teignum í fjærhornið.

Tékkar náðu að minnka muninn í seinni hálfleik. Þeir komust upp í hraða sókn og Adam Hlozek fann Jiri Slama óvaldaðan og hann skoraði af öryggi.
Tékkar komu svo boltanum í netið stuttu síðar eftir aukaspyrnu en markið var dæmt af þar sem Spánverjar voru brotlegir. Ladislav Krejci, sem skoraði, var ósáttur og fékk gult spjald.
Reiðin var ekki runnin af honum því hann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt stuttu síðar fyrir að rífa í Roberto Fernandez.
MIkel Merino innsiglaði sigur Spánverja undir lokin. Victor Munoz komst í gott færi en Antonin Kinsky varði boltann út í teiginn og Merino mætti og skoraði.
Spánn er með níu stig á toppnum, England með sex stig, Króatía þrjú og Tékkland án stiga.
Skotland vann sinn fyrsta sigur þegar liðið heimsótti Norður Makedóníu í riðli eitt í B-deild. Kieran Bowie kom Skotum yfir snemma leiks þegar hann skoraði með skoti fyrir utan teiginn.
John McGinn innsiglaði sigurinn með marki úr vítaspyrnu. Skotar spiluðu síðustu mínúturnar einum færri eftir að Scott McKenna fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot á Agon Elezi.
Þá vann Sviss sigur á Slóveníu eftir að hafa lent undir strax í upphafi leiks. Slóvenía er á toppnum með níu stig, Slóvenía og Skotland eru með fjögur stig og Norður Makedónía án stiga.
A-deild
Spánn 3 - 1 Tékkland
1-0 Lamine Yamal ('6 )
2-0 Rodri ('35 )
2-1 Jiri Slama ('69 )
3-1 Mikel Merino ('89 )
Rautt spjald: Ladislav Krejci, Czech Republic ('85)
B-deild
Norður Makedónía 0 - 2 Skotland
0-1 Kieron Bowie ('7 )
0-2 John McGinn ('69 , víti)
Rautt spjald: Scott McKenna, Scotland ('83)
Sviss 2 - 1 Slóvenía
0-1 Zan Vipotnik ('2 )
0-2 Erik Janza ('10 , sjálfsmark)
1-2 Dan Ndoye ('38 )