Fotbolti.net
03.10.26 - 19:50
Kári Snorrason

Hákon Rafn: Sjáum hvernig þjálfarinn velur í liðið

Auglýsing
Hákon Rafn: Sjáum hvernig þjálfarinn velur í liðið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
„Gott að vinna í dag og svara fyrir Eistaleikinn um síðustu helgi. Ég er mjög ánægður,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson eftir 3-0 sigur á Búlgaríu fyrr í dag.

Með sigrinum styrkti Ísland stöðu sína á toppi riðilsins í C-deild Þjóðadeildarinnar og er Ísland nú með sjö stig og tveggja stiga forystu á Eistland sem er í öðru sæti.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Búlgaría
Hákon hefur komið vel inn í mark Íslands í fjarveru Elías Rafns Ólafssonar sem er að glíma við meiðsli.

„Maður er ánægður með þetta, við þurfum að klára þetta vel á þriðjudaginn.“

Með frammistöðum sínum í glugganum gerir Hákon svo sannarlega tilkall að halda í markvarðarstöðuna þegar Elías Rafn kemur til baka. „Já já, ég er bara að gera mitt besta. Sjáum hvernig þjálfarinn velur í liðið.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.