Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 10. nóvember 2022 22:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Deildabikarinn: Liverpool fer á Etihad - Burnley heimsækir Man Utd
Mynd: EPA

Manchester United var síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 16 liða úrslit enska deildabikarsins með sigri á Aston Villa.


Rétt í þessu var dregið í 16 liða úrslitin en stórleikur umferðarinnar er viðureign Manchester City og Liverpool á Etihad.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley heimsækja Old Trafford og mæta Manchester United.

Newcastle mætir Bournemouth en það er aðeins einn af tveimur úrvalsdeildarslögunum. Brighton sló út Arsenal en lærisveinar De Zerbi heimsækja Charlton sem leikur í League One.

Nottingham Forest heimsækir Blackburn. Leikirnir fara fram 20. og 21. desember en úrslitaleikur HM fer fram 18. desember.

16 liða úrslitin

Wolves - Gillingham
Southampton - Lincoln
Blackburn - Nottingham Forest
Newcastle - Bournemouth
Manchester City - Liverpool
Manchester United - Burnley
MK Dons - Leicester
Charlton - Brighton


Athugasemdir
banner
banner
banner