Fotbolti.net
10.12.13 - 10:15
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Þrír frá Newcastle

Fabricio Coloccini er í hjarta varnarinnar.

Fabricio Coloccini er í hjarta varnarinnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Sigur Newcastle á Manchester United um helgina tryggir þremur leikmönnum fyrrnefnda liðsins sæti í úrvalsliði vikunnar í ensku úrvalsdeildarinnar.

Fulham og Norwich eiga einnig tvo fulltrúa í liðinu hjá Garth Crooks á BBC.


Markvörður - John Ruddy (Norwich)
Eftir að hafa fengið fimm mörk á sig á Anfield í síðustu viku þá átti Ruddy stórleik gegn WBA um helgina þar sem hann varði tíu skot og hélt hreinu.

Varnarmaður - Kyle Walker (Tottenham)
Walker var öflugur í sigri Tottenham á Sunderland og hjálpaði mikið til í sóknarleiknum eins og vanalega.

Varnarmaður - Fabricio Coloccini (Newcastle)
Coloccini vildi fara frá Newcastle en fékk ekki ósk sína uppfyllta. Það hefur margborgað sig en Argentínumaðurinn átti enn einn stórleikinn á Old Trafford um helgina.

Varnarmaður - Mike Williamson (Newcastle)
Williamson átti líkt og Coloccini frábæran leik í 1-0 sigri Newcastle á Manchester United.

Varnarmaður - John Arne Riise (Fulham)
Riise var gleymdur og grafinn undir stjórn Martin Jol en eftir að Rene Meulensteen tók við fékk hann tækifærið og nýtti það vel gegn Aston Villa.

Miðjumaður - Yohan Cabaye (Newcastle)
Cabaye skoraði sigurmark Newcastle á Old Trafford. Líkt og Coloccini þá vildi hann áður fara frá félaginu en án árangurs.

Miðjumaður - Leroy Fer (Norwich)
Fer fer í hóp miðjumanna í liði vikunnar eftir góðan leik gegn WBA. Fer lagði upp fyrra mark Norwich í leiknum og skoraði síðan það síðara.

Miðjumaður - Scott Parker (Fulham)
Parker var grjótharður á miðjunni í 2-0 sigri Fulham á West Ham. Átti stórleik ásamt félaga sínum Steve Sidwell.

Framherji - Andre Schurrle (Chelsea)
Schurrle skoraði tvö mörk fyrir utan vítateig fyrir Chelsea gegn Stoke. Það dugði þó ekki fyrir þá bláklæddu því Stoke vann 3-2.

Framherji - Cameron Jerome (Crystal Palace)
Jerome og félagi hans Marouane Chamakh virðast hafa gengið í gegnum endurnýjun lífdaga eftir að Tony Pulis tók við Palace og þeir skoruðu báðir gegn Cardiff um helgina.

Framherji - Luis Suarez (Liverpool)
Suarez hefur oft átt sæti í liði umferðarinnar að undanförnu. Hann tryggði sitt sæti með góðri frammistöðu gegn West Ham um helgina.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Suarez er í fremstu víglínu.

Suarez er í fremstu víglínu.

Canon

Mynd: Getty Images

Cameron Jerome er í liðinu í fyrsta skipti á tímabilinu.

Cameron Jerome er í liðinu í fyrsta skipti á tímabilinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.