Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 11. febrúar 2020 21:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Skelfileg mistök Casilla þegar Brentford komst yfir
Mynd: Getty Images
Staðan er 1-1 í viðureign Leeds og Brentford í ensku Championship deildinni.

Said Benrahma kom Brentford yfir á 25. mínúta en Liam Cooper jafnaði metin á 38. mínútu.

Mark Brentford kom eftir að leikmenn Leeds reyndu að spila út frá markmanni. Kiko Casilla kom boltanum út en þegar boltinn barst til baka á hann klúðraði hann móttökunni og Said náði boltanum og skoraði auðveldlega.

Jöfnunarmark Leeds kom eftir hornspyrnu þar sem markvörður Brentford náði ekki að grípa boltann og Leedsarar voru á tánum og náðu inn marki.

Mark Brentford má sjá hér og mark Leeds má sjá hér.

Um 22 mínútur eru eftir af leiknum þegar þetta er skrifað.
Athugasemdir
banner
banner